|
25.07.2006 23:36:40 / hera
http://hebrina.bloggar.is ....farin héðan, flutt þangað.
Hera, hér og þar
»
25.07.2006 22:01:56 / hera
það gersit svo lítið í lífi mínu þessa dagana að það hreinlega er
ekkert að blogga um...en ég er á lífi, hef það gott og svo
framvegis.
Hera, þú veist
»
14.07.2006 00:11:55 / hera
Fyrir þá sem muna hvernig plönin voru hjá mér fyrir tveimur
árum...hvernig ég ætlaði að vinna mér inn pening á strikinu ef ég
kæmist ekki inn í skólann.

Hera, ekki með brjóstin í hnút
»
06.07.2006 23:05:49 / hera
Síðan seinast er ég meðal annars búin að...
- fara á djammið
- fá mér vinnu
- þykjast aðstoða við að reka hross...já ég veit, ég var eins og
retarður útí móa
- sofa út suma daga og sofa of lítið aðra daga
- hjálpa Helga við múrvinnu...alveg í korter, ég hjálpaði samt,
ógó dugleg
- hitta fólk
- hafa það bjútífúllí gott hér hjá ma og pa og á Hellu
- fá stærsta ofnæmiskast í heimi við það eitt að labba inn í
fjós...hey skilurru.
Núna er ég Hermann þreytti, svona fólk eins og ég sem er búið að
vera meira í vinkli en upprétt sökum bókalesturs mánuðum saman er
freyttur í löppunum eftir að standa í vinnurinni...þannig að ég
ætla að fara að kúra mér...alveg ein aðí að Helgi er enn á Hellu að
múra bílskúr.
Hera, þreyttur og biður að heilsa
»
29.06.2006 23:48:16 / hera
Jæja Pétur...ég fékk ekki vinnuna sem mig langaði í, ógeðs svekkt,
en það var einhver sem sótti um sem er lengra komin ég í námi og
víst lítið hægt að röfla yfir þessu.
Núna veit ég ekkert hvað ég á að gera í sumar, hvar á mar að vinna,
af hverju og klukkan hvað? svör óskast...
Hera, atvinnulaus að aumingjast
»
26.06.2006 16:34:37 / hera
Það er ljúft að vera í fríi á Íslandi...svo þarf mar víst að fara
að vinna líka. Ég fæ að vita á morgun hvort að ég fæ vinnuna sem
mig langar í, ef ekki þá ætti ég nú ekki að vera lengi að koma mér
í eitthvað.
Alveg spurning samt um að gera það bara að venju að vera í fríi á
Íslandi, vera ekkert að vesenast þetta að koma heim til að vinna,
bara koma heim í tvær vikur og fríast.
Annars er lítið að frétta og þess vegna lítið um að skrifa erum
bara búin að vera að hafa það gott í Drápuhlíðinni og á Hellu,
ljúfa líf ljúfa líf.
Hera, í fríi
»
21.06.2006 09:51:05 / hera
Komin til landsins og tók sólina með mér...það var ekkert að
þakka.
Er með sama númer og vanalega, heyri í ykkur.
Hera, hjá mömmu og pabba.
»
16.06.2006 19:17:27 / hera
Vornin á verkefninu...þúst lokaprófið, gekk bara ágætlega. Við
vorum þrjár úr grúbbunni sem fengum níu og ein sem fékk átta, sem
var ekkert nema sanngjarnt, eða jú kannski pínu ósanngjarnt hún
hefði mesta lagi átt að fá 7, en svona er lífið.
Ég er allavega komin í sumarfrí sem er gott fyrir mig og
geðheilsuna.
Framundan er bara að þrífa, pakka og koma ollu á hreint áður en við
komum okkur héðan til Koben á mánudaginn og fljúgum heim á
þriðjudaginn.
Það verður nú soldið gott að komast heim...eigum reyndar eftir að
finna útúr því endanlega hvar á að vinna og hvar á að búa...en ég
meina, bara huggulegheit.
Hera, í sumarfríi
»
13.06.2006 19:04:22 / hera
Það er svo heitt að það er ekki hægt að ætlast til þess að mar geti
lært....og lokaprófið, þ.e. vornin á verkefninu er eftir 12
tíma.
Ég er búin að sitja bara og stara á verkefnið og bækurnar í fimm
tíma núna, heilinn er í verkfalli, held að hann sé orðinn að mauki
sokum ofreynslu og hita.
mér líður eins og sveittu svíni í afmæli og langar bara að þetta
blessaða próf sé yfirstaðið og það komi sumarfrí...þá get ég farið
að njóta veðursins almennilega, mar þarf nebblega ekki að hugsa
þegar mar er í fríi 
Hera, 14 tímar í sumarfrí
»
12.06.2006 15:40:58 / hera
Við erum að tala um það krakkar mínir að það er 28 stiga hiti og
heiðskírt...búið að vera þannig undanfarið og verður þannig áfram
fyrir utan þrumur og eldingar sem hafa boðað komu sína annað
kvold.
...það er svo heitt að Hermann er kominn í pils, og þeir sem til
þekkja vita nú að það þarf mikið að gerast áður en Hemmi litli
lætur plata sig í solleiss flík!
Hera, í pilsi að safna yfirvaraskeggi
»
08.06.2006 13:20:21 / hera
Mig langar í skó og ég veit nákvæmlega hvernig þeir líta út...just
one tiny little problem, það er enginn sem framleiðir þá!!!
Ég vil ekki opna skó aðí að þá á ég það til að snúa mig, detta og
missa coolpoints og ekki eru það stígvel, því það mun aldrei gerast
að ég komi monsterkálfunum á mér oní soleiðis fyrirbæri.
Ég fór í skóbúð fyrir ekki svo longu og spurði hvort að það væri
ekki til svona skór sem líta út eins og allir hinir skórnir í
búðinni, bara ekki opnir og ekki stígvel, bara okklaskór...gæinn
benti mér á að bara ommur ganga í okklaháum skóm.
...það er semsagt ekki í tísku að vera með breiða kálfa þannig að
ég hugsa að ég verði bara á vetrartúttunum í sumar.
Hera, að finna sér eitthvað annað að gera en læra fyrir
lokaprófið
»
01.06.2006 19:11:21 / hera
Við skiluðum verkefninu í prentun í gær, hittumst svo í dag, með
alla timburmennina með okkur, að ná í verkefnið, skrifa undir og
skila til ritarans. Endalaus hamingja að vera búin með þetta.
Það er sossem búið að ganga vel að skrifa og við vorum nánast búnar
fyrir viku, en samt endar alltaf með því að mar situr seinustu þrjá
dagana í 18 tíma á dag og les yfir aftur og aftur...end tekur það
slatta tíma að lesa yfir 100 síður og tékka hvort að allt sé á
sínum stað, stafsetningar og málfarsvillur og svo víðara....þetta
er búið!!!! ...nema náttla fyrir utan lokaprófið sem er 14. en það
ætti ekki að vera mikið mál
Félagssálfræðiprófið sem ég tók rétt eftir páska gekk líka
ágætlega...ég var nett hrædd um að ég væri fallin þar sem að prófið
var strax eftir páskafrí og ég eyddi páskunum í ýmislegt annað en
að læra. Ég fékk 8 og get varla annað en verið sátt við það, svona
miðað við aðstæður, aldur, fyrri störf og háralit.
Svo eru mamma og Halla að koma á morgun, og verða fram á mánudag.
Það hefur hjálpað mér að halda í restarnar af geðheilsunni að vita
að þær væru að koma til mín...ég hlakka svo til að sjá þær.
Svo bara prófið 14. sem þarf að lesa fyrir, Helgi fer í seinasta
prófið 19. Eftir það stökkvum við uppí lest til höfuðborgarinnar,
aðí að ég þarf að fara á stjórnarfund, og það hentar ágætlega að
Helgi komi barasta með mér til Köben þá aðí að við fljúgum heim
tuttugasta....það er skilurru eftir 20 daga! Bjútífúl.
Hera, bara glöð
»
24.05.2006 06:16:56 / hera

Er grasið grænna, fólkið fallegra, himininn blárri og allt betra á
Íslandi, eða er ég bara með heimþrá...ja, mar spyr sig.
Hera, að velta þessu fyrir sér
»
22.05.2006 21:38:45 / hera
Við Helgi vorum að ræða áðan hvort
að hljóð berist hraðar í lofti eða vatni (erum svo gáfuð að við
erum alltaf að ræða svona hluti sko...)
Ég fór að segja honum frá því að ég
hefði verið að lesa grein um samskipti höfrunga...ég meina ég sit í
strætó ansi lengi á morgnanna og þá er ágætt að lesa eitthvað annað
en pensum.
Allavega, það var einn galli við
söguna, ég gat ómögulega munað orðið höfrungar, þannig að ég
kallaði þá hlébarða...fannst það hljóma soldið undarlega en fannst
þetta samt heita hlébarðar.
Það er víst alveg á hreinu að dýr og
solleiss er ekki alveg mín sterka hlið.
Hera, veit samt að beljur eru með
fjóra spena.
»
22.05.2006 16:57:32 / hera
Skrítið með heimþrá.
Ég á það til að sakna fjölskyldunnar
og vina alveg ogboðslega. Auðvitað venst það, að hafa þau ekki
nálægt sér og ekki skilja mig þannig að ég sé stöðugt að kafna
úr heimþrá. En stundum væri ég alveg til í að taka Álaborg,
Reykjavík og Köben í blender og búa þar...það væri góð
blanda.
Heimþrá og söknuður virðist líka koma
í bylgjum, stundum hreinlega hellist þetta yfir mig, ekkert
endilega ef það er eitthvað að, eða þegar mér líður illa,
þetta bara gerist, og ekkert sem ég get gert til að koma í veg
fyrir það.
Það er alda yfir mér núna, full af
heimþrá söknuði og hugsunum um hvað er allt frábært á
Íslandi.
Það er eins og minni að ég hafi
skrifað svipaða færslu fyrir ári síðan, kannski tengist þetta því
að ég veit að við erum á leiðinni heim eftir mánuð og þá fer maður
að hugsa meira til alls og allra.
Það sem heldur mér gangandi núna og
hjálpar mér að halda í leifarnar af geðheilsunni (sem týndist í
verkefnaskrifum) er að mamma og Halla eru að koma eftir 11
daga. Tveimur
dogum eftir verkefnaskil og tólf dagar í vörnina, þannig að við
getum bara dinglað okkur og haft það huggulegt.
Helgi greyið verður örugglega
uppgefinn eftir þrjá daga með okkur mæðgunum og skvettulátunum...en
hann verður að venjast þessu.
Hera, níu dagar í skil...níu dagar
þangað til ég á líf aftur.
»
Síður: 1 2 3 ... 14
|